Sarpur

Nýjar hryssur í ræktun

Við höfum eignast nýjar hryssur og eru sumar þeirra komnar strax í ræktun.
Hending frá Blönduósi er 9 vetra jörp hryssa. F: Garpur frá Auðholtshjáleigu og M: Hlökk frá Hólum sem gerir hana sammæðra Hrym. Hún slasaðist í tamningu braut griffilbein og var aldrei sýnd en var mjög álitleg. Hún er nú fylfull við Stála frá Kjarri.
Aría frá Flugumýri er Keilisdóttir, undan Kommu frá Flugumýri (Kolskarardóttur) Synd að ekki var hægt að sýna hana í sumar. Þetta er hágeng alhliðahryssa en aðallega töltari, brokkið slakt en mjög falleg með grannan og langan háls. Aría er fylfull við Héðni Skúla frá Oddhóli sem verður líklega sýndur 2012.
Aría er fjær á myndinni, mynd af flugumýri.is Aría og Páll Bjarki
Gígja frá Búlandi er 1. verðlauna Hrymsdóttir sem við eigum í sameiningu með Daníel Jónssyni og er hún þar í þjálfun núna. En hún er m.a. systir Nasks frá Búlandi og Rúnar frá Búlandi.