Ormalyf og Örmerkingar
Við rákum stóðið heim á mánudaginn og Gestur dýralæknir sprautaði allt stóðið með orma og lúsalyfi. Eins örmerktum við öll folöldin sem reyndust vera 25 talsins en nokkur voru í eigu annara. Við fengum góða hjálp frá vinum en Tobías Sigurðsson, Ingi Steinn og Rósberg voru betri en engir enda stóðið orðið vel á annað hundrað
Við hlökkum til vorsins því ef allt gengur upp þá eigum við þónokkrar efnilegar hryssur í þjálfun og eins næsti árgangur sem verður mjög spennandi. Læt fylgja mynd af drottningunni okkar Söru frá Víðinesi en Hringur verður kominn á tamningaaldur næsta haust.
