Stóðhestar sumarið 2012
Maður er strax farinn að pæla hvaða stóðhesta skuli nota næsta ár. Hrymur frá Hofi verður að sjálfsögðu best notaður en við eigum 3 mjög álitleg Hrymsafkvæmi í þjálfun núna. Leó Geir er með Steinku og var alveg byrjað frá grunni með hana og er að komst svona „Leó snykkur“ á hana og verður gaman að sjá útkomuna. Set hér mynd af Steinku 
Efemía frá Garði er grá á 5 vetur og verður smart hryssa og síðan geldingur sem við eigum, Stjörnufákur frá Blönduósi 6 vetra og mikið efni í keppnishest, hann er í þjálfun í Hólakoti.
Síðan er ætlunin að komast undir Fróða frá Staðartungu sem á örugglega eftir að slá einhver hæfileikamet ef hann verður sýndur aftur.
Blysfari frá Fremra-Hálsi fær nokkrar, ótrúlegur hestur og síðan er Einar mágur alltaf með eitthvað spennandi.
Dvali frá Hrafnagili grár að lit, sem við eigum undan Keilu frá Bjarnastaðahlíð og Auð frá Lundum fær líklega 2-3 hryssur en hann vann folaldasýninguna í fyrra. Fer um á hágengu tölti með miklum fótaburði enda með 119 í Bluppi fyrir fegurð í reið. Síðan sér maður til hvernig folöldin undan Hring (Söru og Kjarnasyni) koma út. Þetta er ekki endanlegur listi en nálægt lagi. Set mynd af Blysfara sem ég tók af heimasíðunni á Lækjamóti.
