Hrymurinn
Hér er mynd af Hrym frá í fyrravor(2010) þegar hann var í þjálfun hjá Þorvaldi Árna á Hvoli. Þarna var hann í svakalegum gír. Það munaði mjög litlu að hann kæmi fram með dætrum sínum þeim Krít frá Miðhjáleigu og Dögg frá Steinnesi í Fáki um vorið en var aftur kominn með hestapestina, það hefði nú verið gaman að eiga það á spólu. Við stefnum að óbreyttu að hafa hann hér heima næsta sumar ef enginn ásælist hann.
