Sarpur

Ræktunarhryssur

Fröken frá Brún

frken

Fröken frá Brún er 1 verðlauna hryssa undan Hljóm frá Brún og Fjöður frá Ögmundarstöðum. Fröken á tvær 1 verðlauna systur, Fífa frá Brún undan Heldi frá Brún og hin er Fönn frá Akureyri, Sæsdóttir.  Fröken var sýnd 5 vetra gömul og hlaut 8,01 í aðaleinkunn.  Lúlli á tvö elstu afkvæmi hennar, hryssu undan Óm frá Brún og svo Sveiflu frá Vopnafirði undan Herði frá Möðrufelli. Rósberg Óttarsson á Hágangsson á 4 vetur hjá Atla Fúsa og fer vel á stað

Er alveg viss um að Fröken á eftir að skila okkur góðum hrossum,  Matti Eiðs sagði mér þegar ég var að hugsa um að kaupa hana að hika ekki við það, þetta væri næsta ósk frá Brún, vona bara að það rætist :) :) Fröken kastaði glæsihryssu undan Blæ frá Hrafnagili heitnum og er nú fylfull við Roða frá Garði

Elding frá Brún

Elding frá Brún er fædd 1984, Matthíasi Eiðssyni stórræktanda, nú á möðrufelli í Eyjafirði.  Eldingu keypti ég 2001 og skilaði hún mér folaldi á hverju ári þangað til 2007. Hún er undan Penna frá Árgerði og Hrafnsdótturinni Þrumu frá Brún (sammæðra Kviku frá Brún, Baldvins Ara)  Folöld undan Eldingu hafa gert það gott á folaldasýningum hér í héraði síðustu ár en Jarpur frá Hrafnagili sem er vígalegur er undan henni. Hún fékk ekki hátt fyrir byggingu á sínum tíma en ágætt fyrir hæfileika, 7,80 klárhryssa. Elding er nú fallin

 

Elding frá Hrafnagili

Elding frá Hrafnagili er fædd 1994 og er undan Höfða-Gustssyninum Drafnari frá Akureyri og Fjólu frá Hrafnagili. Elding er sérstök á litinn, sótrauðtvístjörnótt,sokkótt á afturfótum og vindfext. Hún var sýnd 2001 af Jakob Sigurðssyni og hlaut 7,63 í aðaleinkunn. Fjóla móðir Eldingar er mikil ættmóðir á Hrafnagili en var aldrei tamin, hún fæddist 1978 og er búin að eiga yfir 20 folöld, þó að einungis nokkur þeirra hafi bara verið skráð í worldfeng. Formóðir Hrafnagilshrossanna, Mósa er amma Fjólu og Náttfari frá Ytra-Dalsgerði er afi hennar. Fjóla eignaðist síðast folald 2003 og er enn á lífi á Hrafnagili og stjórmar stóðinu í fjallinu, heldur því nálægt heimahögum. Loks má geta að Fjóla er svo aftur amma Söru frá Víðinesi.

 

 

Skotta

Skotta er fædd Hjalta Jósepssyni á Hrafnagili 1994 og er brúnskjótt á lit. Faðir hennar er Gáskasonurinn Hlöðver frá Höskuldsstöðum og móðir hennar er Stóra-Hlíð frá Hrafnagili, hálfsystir Steinku 3848. Skotta var keypt heim aftur vorið 2005 ásamt dóttur sinni Gæfu frá Eyri sem verður tamin í vetur. Skotta kastaði í vor (06) brúnskjóttu hestfolaldi undan Töfra frá Selfossi og 07 hryssu undan Dósent frá Brún. Skotta er ósýnd og er mjög geðgóð og með fínt tölt og fótaburð.

Keila

keila

Keila er grá að lit og er undan Keili frá Miðsitju og Hlíðargránu frá Bjarnastaðahlíð.  Keila er 1. verðlauna hryssa, bæði fyrir sköpulag og hæfileika. Systir Keilu muna kannski margir eftir, henni Lyftingu frá Bjarnastaðahlíð, Gustsdóttir með 10 fyrir hægt tölt, svakaleg fótaburðarmeri. 

Keila er mikið viljug og ekki sama hvernig er komið að henni og mikill persónuleiki. Hún hafði gengið kaupum og sölum áður en við eignuðumst hana og hafði þá verið meira og minna á járnum í 2 ár.  Hún eignaðist hryssu hjá okkur vorið 2007 og fór svo í létta þjálfun uppúr áramótunum 2008 til Lúlla í Möðrufelli.  Lúlli hafði gaman af henni og gekk vel með hana og saman áttu þau frábæra sýningu á Dalvík um sumarið þar sem Keila fór í 1. verðlaun, hún vildi oft spennast upp þegar hún mætti á sýningarvelli en allt gekk upp þennan dag.

 

 

 

Sköpulag

Höfuð 9 Háls/herðar/bógar 8.5 Bak og lend 8 Samræmi 8 Fótagerð 7.5 Réttleiki 8 Hófar 7.5 Prúðleiki 7 Sköpulag 8.01 Kostir Tölt 8.5 Brokk 8

Skeið mest fengið 8

7 Stökk 7.5 Vilji og geðslag 8.5 Fegurð í reið 8.5 Fet 7 Hæfileikar 8.1 Hægt tölt 8.5 Hægt stökk 7.5 Aðaleinkunn 8.07

 

 

Sara frá Víðinesi

 

imageSara frá Víðinesi er fædd árið 2000 og er að hálfu hrafnagilsættuð. Hún er undan Sóley frá Hrafnagili og glæsihestinum Þokka frá Kýrholti, Söru keyptum við um áramótin 2004-2005 og var hún alveg ótamin. Sara fékk 1. verðlaun á kynbótasýningu í Hafnafirði 2006 og hækkaði svo aftur hjá Páli Bjarka Pálssyni á Kynbótasýningu á Dalvík 2 vikum seinna. Hún er alhliðahryssa með mikinn fótaburð og ber einkenni margra hrossa frá Hrafnagili, þ.e. Háls/og herðar, sem hún fékk 9,0 fyrir. Við bindum miklar vonir við Söru og snilld að eignast svona hryssu strax í upphafi ræktunarferils.  Sara eignaðist svo rautt hestfolald 2007 undan Forseta frá Vorsabæ og var svo í Þjálfun hjá Þorvaldi Árna á Hvoli veturinn 2007-2008 og komst á Landsmót 2008 og náði 11 sæti í flokki 7 vetra og eldri með aðaleinkunn upp á 8,29

Hæsti Dómur Söru, tekið af Worldfeng

 

 

Sköpulag Höfuð 8 Háls/herðar/bógar 9 Bak og lend 8 Samræmi 8 Fótagerð 8 Réttleiki 7 Hófar 7.5 Prúðleiki 7.5 Sköpulag 8.08 Kostir Tölt 8.5 Brokk hæst fengið 9,0 8.5 Skeið 8 Stökk hæst fengið 8,0 7.5 Vilji og geðslag 8.5 Fegurð í reið 9 Fet 8 Hæfileikar 8.42 Hægt tölt hæst  fengið 9,0 8.5 Hægt stökk 8 Aðaleinkunn 8.29

Kolbrá frá Kvíarhóli

Kolbrá frá Kvíarhóli er fædd 1987 og er sýnd 1994 og með 7,54 í aðaleinkunn, þar ber hæst 8 fyrir bæði tölt og brokk og 8,5 fyrir fegurð í reið. Hún er brún á lit og ekki stór en mjög faxprúð og er að gefa álitleg folöld að mér finnst, er miklu fallegri en byggingardómur segir til um. Árið 2003 var auglýstur graðhestur undan henni til leigu í stóðhestablaði Eiðfaxa, Kristall frá Auðholtshjáleigu sem hefur aldrei verið sýndur út af einhverjum ástæðum en er síðast er ég vissi enn ógeltur.

Kolbrá var keypt 2002 frá Syðri-Löngumýri og er vel ættuð þó að ekki hafi hún gert neinar rósir á Kynbótabrautinni. Hún er undan 1. verðlaunamerinni Hrefnu frá Hrafnagili sem var undan Steinku 3848 og Hrafnfinni frá Kvíarhóli, 1.verðlauna Hesti undan Hrafni frá Holtsmúla. Hrefna var sýnd 1968 og fór þá í fyrstu verðlaun, klárhryssa með 8,5 fyrir allar gangtegundir nema skeið, og 8,10 í byggingu. Hrefna kemur víða við í ætt Hrímnis sem ég leita eftir að tengja við, því hún er hálfsystir Hrímnis og Hvíti-Hrafn er einnig undan henni sem aftur er föðurfaðir Hrímnis, þetta er mjög mikil skyldleikarækt sem tókst vel. Gaman er því að hafa náð í Kolbrá og sjá svo hverju hún eigi eftir að skila. Kolbrá á hálfsystur sem heitir Nett frá Hvoli og er 1. verðlaunameri með 8,27 fyrir hæfileika og 8,13 fyrir sköpulag.

Afkvæmi Kolbráar tekið af worldfeng

IS2002165542 Dökkvi Háski frá Hrafnagili 93 IS2003165601 Flótti Hróður frá Hrafnagili 102 IS2004165601 Flótti Hrafn frá Hrafnagili 102 IS2005265601 hrymur Hrefna frá Hrafnagili 105 IS2006265601 Töfri Blíð frá Hrafnagili 102 IS2007265604 Forseti Vitund frá Hrafnagili 109 IS2008165600 Dósent Hrókur frá Hrafnagili

Blanda

Blöndu keypti ég 2003 af Þorbergi Aðalsteinssyni sem bjó á Eyjólfsstöðum í Vatnsdal. Blanda er undan Bergs-Brúnku og Víking frá Hrafnagili, fædd 1990 og er móálótt á lit. Hún hefur aldrei verið sýnd því hún slasaðist á auga og fæti 5 vetra gömul og er blind en hún var efnileg og víga hágeng að sögn Þorbergs. Hún mætti samt vera stærri og hálslengri en hálsinn er þó vel settur og geðslagið er einstakt.

Blanda hefur strax skilað mögnuðm klár en það er Silfri frá Rauðuvík, móálóttur sem Ármann Ármannsson á Mið-Fossum við Hvanneyri á og er aðal reiðhesturinn hans, víga hágengur með einstakt geðslag.

Móðir Blöndu var Bergs-Brúnka, fæddist 1982 og var síðasta afkvæmi Steinku 3848 og Rauðum fola frá Kolkuósi. Bergs-Brúnka var felld langt fyrir aldur fram vegna dvínandi áhuga á Hrossaræktinni hér á bæ og nánast ófyrirgefanlegt því það sem undan henni kom voru góð hross. Hrafn frá Hrafnagili er undan henni en hann var á LM hestamanna 1998 í B-flokki með Vigni Siggeirssyni, er nú á Hvítárvöllum í Borgarfirði. Þá var Hraunar frá Hrafnagili, grár á LM hestamanna 2004 og 2006 í unglingaflokki fyrir Létti á Akureyri og eigandi hans Oddný Lára Guðnadóttir og náðu þau ágætis árangri, sérstakslega 2004. 

Afkvæmi Blöndu tekið af Worldfeng

IS1993165141 Hreyfill frá Rauðuvík Silfri frá Rauðuvík       96   IS1997156094 Glampi frá Flögu Gyllir frá Eyjólfsstöðum       97   IS1998156094 Safír Höskuldsstöðum Sokki frá Eyjólfsstöðum       97   IS1999256096 Víkingur Voðmúlas Blæja frá Eyjólfsstöðum       103   IS2001256097 Gammur Steinnesi Snót frá Eyjólfsstöðum       99   IS2002156097 Þór Akureyri Ljúfur frá Eyjólfsstöðum       97   IS2003256096 Gammur steinnesi Brella frá Eyjólfsstöðum       99   IS2004265604 Flótti Borgarhóli Hrund frá Hrafnagili       99   IS2006165603 Vængur Brúnum Hreimur frá Hrafnagili       97   IS2007265601 Forseti Vorsabæ Vænting frá Hrafnagili       104   IS2008165606 Rökkvi Hárlaugss Nn frá Hrafnagili          

Perla

perla_fra_hrafnagiliPerlu keypti ég síðsumars 2001 af Hjördísi á Eyri og hélt henni strax undir Sleipni frá Efri-Rauðalæk. Perla er ljósmóálótt stjörnótt og er fædd árið 1990, undan Móu frá Hrafnagili og Víking frá Hrafnagili sem var móálóttur. Perla hefur aldrei verið sýnd en þegar ég keypti hana var hún rétt komin úr hestaleigu af hálendinu og var í góðu formi, og auðvitað hefði átt að sýna hana þá, allavega byggingadæma hana. Perla er klárhryssa með góðu tölti og mikið viljug með fínum fótaburði og vel reist. Hún hefur eignast folöld á hverju ári síðan. hér koma þau….