Dyggð frá Hrafnagili
Á slóðinni hér að neðan er hægt að sjá video af Dyggð okkar en hún er mjög lítið tamin. Hún er á 4 vetur undan Forseta frá Vorsabæ og Keilu frá Bjarnastaðahlíð sem eru bæði 1 verðlauna hross. Auðbjörn í Hólakoti er knapi á Dyggð en hann er einn af þeim kaldari í bransanum og Ester Anna kona hans myndaði af sinni stakri snilld http://youtu.be/5jy5JutaFS8
Sleppur alveg þessi
Ég og Rósberg Óttarsson félagi minn erum nýkomnir af suðurlandinu en við vorum bæði að fara með hross og að sækja hross. Við komum víða við og hittum marga en eitt af því sem við gerðum var að sækja þessa myndarlegu hryssu en þetta er hún Hringrás frá Hrafnagili á þriðja vetur, undan Væng frá Brúnum sem ég átti einu sinni, 1 verðlauna hesti sem nú er í danmörku og Gæsku frá Leysingjastöðum, systur Stíganda frá Leysingjastöðum.

Sæl aftur
Þá er eitthvað loksins að frétta hér hjá okkur. Við erum með nokkur hross í þjálfun og nokkur í frumtamningu. Við hófum samstarf nú í haust við eitt ötulasta tamningafólkið hér í sveit, þau Auðbjörn og Ester í Hólakoti og fáir eru eins og Auðbjörn þegar að frumtamningum kemur. Þau seldu fyrir okkur Jarp í haust og fer hann til swiss á góðan stað í janúar n.k. hægt er að sjá video af honum og Auði Karen á holakot.net og er hann alltaf að verða betri og betri.
Freisting meiddist
Við eru alltaf jafn heppin því Álfasteinsdóttirin okkar var orðin svakalega góð daginn fyrir sýningu að Ásdís byrjaði á að sýna hana en eitthvað var mikið að því þetta var hörmulegt og hryssan slasað sig nóttina áður eða um morguninn einhversstaðar ánþess að það fattaðist og var draghölt orðin eftir sýninguna og eftir standa heilir 7,18 fyrir hæfileika og 7,83 fyrir sköpulag. Þannig að hún verður höfð geld 1 vetur ennþá.
Hrönn frá Hrafnagili
Hrönn frá Hrafnagili Perlu og Flóttadóttir fékk 7,70 í aðaleinkunn eftir yfirlitið á föstudaginn. tölt 8,0 brokk 7,5 var með 8 skeið 7,5 var með 6,5 stökk 8,0 vilji/geð 8,0 feg reið 7,5 mikill fótaburður, framsett fer líklega undir Hrym núna.
Fín fyljun
Við sónarskoðuðum í dag frá Hrym og kom það vel út og eru 10 merar eftir hjá honum en það hefur verið nóg að gera hjá honum í sumar. Perla okkar var fylfull og sömuleiðis móðir Krítar frá Miðhjáleigu sem Leó geir kom með. Síðan minnti Hrymur rækilega á sig á síðsumarssýningunni á Melgerðismelum um helgina, 4 hryssur sýndar og tvær í 1 verðlaun og allar með 8,5 fyrir tölt. Evelyn frá Litla-Garði, klárhryssa fékk 8,28 fyrir sköpulag og 8,5 allsstaðar fyrir hæfileika og Gígja frá Búlandi hlaut 8 slétta. Síðan var hryssan frá Garðshorni grá sem á bara eftir að verða betri, svaka fótaburðarhryssa með 8,5 fyrir tölt og spái ég vel fyrir henni, vantaði kannski reynslu hjá sýnandanum.
Kubbur frá Læk í 1. verðlaun, klárhestur
Hrymssonurinn Kubbur frá Læk fór í 1, verðlaun í dag á síðsumarssýningunni á Vesturlandi. Jakob Sigurðsson sýndi hann í 8,28 fyrir sköpulag og 7,82 fyrir kosti, 8,5 tölt, 8,0 brokk 8.5 stökk, vilja og feg í reið og meira að segja líka fyrir fet
Á Melgerðismelum á morgun þá verða 16,7 % af sýningarhrossunum undan Hrym, eða 5 af 30 og verður gaman að sjá hvernig það endar.
Kynbótasýning á morgunj
Kynbótasýning á morgun a Melgerdismelum á morgun, vid ætlum ad láta sýna tvær hryssur, þær Hrönn og Freistingu. Einnig verða sýndar 5 Hrymsdætur þar líka. Síðan er stórmót á Melunum um helgina og allir að mæta þangað
Er allt að frjósa í hrossasölu ?
Án þess að vera með einhverja svartssýnisspá þá er að heyra að sala á hrossum hafi sjaldan eða aldrei verið eins dauf og seljist varla hross nema algjörir toppar, þannig að við ákváðum að vera ekki með allt á fullu í sumar, bara 4-5 hross. Lúlli er farinn að temja hjá Birnu og Hólmgeiri á Akureyri og hætti hér á föstudag og vonandi gengur honum allt í haginn þar. Steinka okkar Hrymsdóttir er að fara suður á land til hans Leó Geirs á Kanastöðum og stefnum við með hana á síðsumarssýningu. Daníel Jóns er með Aríu frá Flugumýri og stefnum við líka með hana á haustsýningu ef kostur er. Síðan eru 2-3 hross sem við eigum eftir að koma fyrir og halda aðeins áfram með og meta famhaldið. Síðan ætlum við að reyna að ráða góðan þjálfara í haust og vetur og vera bara með passlegan fjölda á húsi
Fréttir
Jæja Steinka okkar Hrymsdóttir var járnuð í dag eftir nærri þriggja mánaða fjarveru og er orðin góð í fætinum en hún var slegin illa og fékk beinhimnubólgu. Stefnt er með hana í sýningu í haust og ætla að gefa henni einn vetur enn í þjálfun og vona að hún meiðist ekki.
Hrymur er hér með 18 hryssur hjá sér og von á fleirum allsstaðar að á næstunni. Það voru sýnd 8 afkvæmi undan honum í vor og sumar og hlutu þau í meðaleinkunn 8,01 fyrir sköpulag og 7,74 fyrir kosti, langflest klárhross. þannig að maður er nokkuð sáttur og ekki fyndið hvað hann skilar flottri frambyggingu. Sigursteinn frá Húsavík og Ungfrú Ástrós frá Blönduósi náðu 1. verðlaunum. Síðan var Álfamey frá Blönduósi sýnd í Noregi 17 júní s.l og hlaut 7,97 í aðaleinkunn, glæsileg klárhryssa.
Enda þetta á því að óska Páli vini mínum Hjálmarssyni á Akureyri til hamingju með merfolaldið undan glæsihryssunni Eldingu frá Blönduósi og Töfrasyninum Kráki frá Blesastöðum