Sarpur

Er allt að frjósa í hrossasölu ?

Án þess að vera með einhverja svartssýnisspá þá er að heyra að sala á hrossum hafi sjaldan eða aldrei verið eins dauf og seljist varla hross nema algjörir toppar, þannig að við ákváðum að vera ekki með allt á fullu í sumar, bara 4-5 hross. Lúlli er farinn að temja hjá Birnu og Hólmgeiri á Akureyri og hætti hér á föstudag og vonandi gengur honum allt í haginn þar. Steinka okkar Hrymsdóttir er að fara suður á land til hans Leó Geirs á Kanastöðum og stefnum við með hana á síðsumarssýningu. Daníel Jóns er með Aríu frá Flugumýri og stefnum við líka með hana á haustsýningu ef kostur er. Síðan eru 2-3 hross sem við eigum eftir að koma fyrir og halda aðeins áfram með og meta famhaldið. Síðan ætlum við að reyna að ráða góðan þjálfara í haust og vetur og vera bara með passlegan fjölda á húsi

Fréttir

Jæja Steinka okkar Hrymsdóttir var járnuð í dag eftir nærri þriggja mánaða fjarveru og er orðin góð í fætinum en hún var slegin illa og fékk beinhimnubólgu. Stefnt er með hana í sýningu í haust og ætla að gefa henni einn vetur enn í þjálfun og vona að hún meiðist ekki. Hrymur er hér með 18 hryssur hjá sér og von á fleirum allsstaðar að á næstunni. Það voru sýnd 8 afkvæmi undan honum í vor og sumar og hlutu þau í meðaleinkunn 8,01 fyrir sköpulag og 7,74 fyrir kosti, langflest klárhross. þannig að maður er nokkuð sáttur og ekki fyndið hvað hann skilar flottri frambyggingu. Sigursteinn frá Húsavík og Ungfrú Ástrós frá Blönduósi náðu 1. verðlaunum. Síðan var Álfamey frá Blönduósi sýnd í Noregi 17 júní s.l og hlaut 7,97 í aðaleinkunn, glæsileg klárhryssa. Enda þetta á því að óska Páli vini mínum Hjálmarssyni á Akureyri til hamingju með merfolaldið undan glæsihryssunni Eldingu frá Blönduósi og Töfrasyninum Kráki frá Blesastöðum :)

Jarpur hækkaði í dag

Lúlli sýndi Jarp í dag og hann hækkaði lítillega eða úr 7,91 í 7,93. sköpulag 8,04 hæfileikar tölt 8,5 brokk 8,5 skeið 5 stökk 8,5 vilji/geð 8,5 feg 8,5 h tölt 7,5 h stökk 8,5

Sýnum í vikunni

Lúlli ætlar að sýna fyrir okkur í vikunni hana Hrönn frá Hrafnagili undan Perlu frá Hrafnagili og Flótta frá Borgarhóli. þetta er hryssa sem var lengi að þroskast og er búin að vera í hestaleigu en er ágætis hryssa og langar okkar að renna henni í gegn en eigum nú ekkert von á neinu heimsmeti :) Síðan byggingadæmum við Spuna frá Kálfhóli sem er Hrymssonur á 5 vetur, lítið taminn og er hann stór og glæsilegur. Við eigum hann nú til helminga með Gesti á Kálfhóli. Hann verður síðan taminn meira í sumar og haust og aldrei að vita nema að hann verði til í sýningu. Við ætlum ekki að sýna meira að svo stöddu en 4 vetra hryssurnar okkar eru ekki alveg tilbúnar og þá er betra að bíða eftir þeim enda liggur ekkert á. Hálf-Mósa okkar undan Gust frá Hóli er mögnuð hryssa sem allir geta riðið á vantar meiri vilja til að sóma sig á kynbótabrautinni, hefur allan gang og hún fær líklega það hlutverk að koma stelpunum okkar á stað í hestamennskunni. Jarpur var sýndur um daginn á Dalvík og fékk fínar tölur þó að hann gengi ekki heill til skógar. Fékk 8,04 fyrir sköpulag og 7,83 fyrir hæfileika. 8,5 tölt, 8,0 brokk á helling þar inni, 5 skeið, 9,0 stökk 8,5 vilji,geð 8,5 feg/reið fet 7,5

Jæja tími til kominn

Langt síðan maður hefur ritað eitthvað hérna og margt gerst undanfarnar vikur. Sara frá Víðinesi kastaði brúnni hryssu undan Orra sjálfum frá Þúfu og frábært að fá hryssu og héldum við Söru undir Hrym í ár. Perla frá Hrafnagili eignaðist glæsilegt hestfolald, rauð.tvístjörnóttan undan Herjólfi frá Ragnheiðarstöðum, en sá fór í flottar tölur í kynbótadómi fyrir stuttu. Perla fór síðan undir Hrym í dag. Þónokkur ásókn er í Hrym hjá okkur og eru núna 8 hryssur hjá honum og von á mörgum í viðbót. Það hafa verið sýnd nokkur hross undan Hrym í vor og sumar og gengið nokkuð vel. Sigursteinn frá Húsavík fór í flottar tölur og í 1 verðlaun 5 vetra klárhestur þ.á.m 9 fyrir tölt, og einnig Húna frá Efra-Hvoli einnig 5 vetra fékk 9.0 fyrir tölt og 8,11 fyrir sköpulag, 7,92 í aðaleinkunn klárhryssa. Gaman hvað Hrymur heldur áfram að skila góðu tölti og fínu sköpulagi. Af 31 sýndu eru 11 hross í 1 verðlaunum og 4 með 7.90 til 7,99 í aðaleink. og 7 hross með 7,80-7,89 ég er mjög sáttur við það því þetta eru mörg hver klárhross og þau eiga nú erfitt uppdrátar þessa dagana í kynbótadómum. Svo er líka gaman hvað mörg eru í 1 verðlaunum fyrir sköpulag en þau eru 14 alls með fullnaðardóm og 3 til viðbótar sem eru bara með byggingardóm og 10 hross með 7,90 og yfir. Þannig að Hrymur er ekkert að dala og ALLIR að drífa sig með hryssur undir Hrym í sumar. Við fengum einnig slettuskjótta hryssu undan Kvisti frá Skagaströnd og Eik frá Dalvík og frábær litur og óvenjulega fallegt folald, langt og háfætt og flottan háls. Að Eik frá Dalvík standa magnaðar ættir, hún er undan Stíg frá Kjartansstöðum og Snerru frá Laugasteini en faðir hennar var Hnokki frá Steðja og móðir hennar Stjarna frá Kolkuósi. Eik fer líklega undir Hrym í ár. Einnig förum við með undir Krák frá Blesastöðum og ein er farin undir Stála frá Kjarri en hún er sammæðra Hrym frá Hofi og undan Garpi frá Auðsholtshjáleigu, var aldrei sýnd,með brotið griffilbein en var vígalega efnileg hryssa. Svo notum við líka Orra, Spuna Vesturkoti og Eldjárn Tjaldhólum líka og Blæ frá Torfunesi sem hefur verið að stimpla sig rækilega inn að undanförnu. Ætlum að prófa Gára á eina en magnað sköpulag sem hann er að skila og hæfileikarnir einnig fínir oft á tíðum.

Verð á Hrym 2011

Við höfum ákveðið að verð á fyljaða hryssu í sumar kosti 100,000 kr með öllu. Þ.e vsk, 1 sónarskoðun og hagagjaldi. Staðfestingar gjaldið er 30.000 og er það óafturkræft. upplýsingar í síma 8921197 Jón Elvar H

Hrymur að komast í form

Lúlli er að þjálfa Hrym og er hann nú allur að komst í form en hann var fyrir sunnan í vægri þjálfun. Hrymur mun koma fram um næstu helgi á Fákum og Fjöri í Top Reiter höllinni á Akureyri ef guð lofar, en Steinka frá Hrafnagili dóttir hans átti einnig að koma þar fram en hún er alltaf jafn óheppin, var slegin í síðustu viku og er með beinhimnubólgu og verður frá í einhvern tíma jafnvel mánuði.

Hrymur kominn heim

Við ákváðum í samráði við Daníel að taka Hrym heim í bili og koma fram á honum hér á norðurlandi með afkvæmum nú fram á vorið og verður Lúlli að þjálfa hann. Fyrsti reiðtúrinn var tekinn í dag og var gamli vígalegur, viljinn sjóðandi og verður gaman í vor ef ekkert kemur uppá. Steinka okkar Hrymsdóttir er orðin VÍGALEG og kemur vonandi fram með Hrym áður en langt um líður.

Hrymur og afkvæmi í Rangárhöllinni

Við skelltum okkur suður s.l fimmtudag og Tóti tók á móti mér og fórum við til Daníels að taka Hrym út en hann kom daginn áður frá Hólaborg og hefði ekkert verið riðið í langan tíma og sýndi gamli fína takta. Við tókum smá æfingu á föstudeginum og gekk það fínt og var ákveðið að Leó Geir kæmi fram á Hrym. Laugardagsmorguninn fór síðan í að þvo Hrym í hesthúsinu hjá Daníel og Guðbjörgu og faxinu skipt. Sýningin tókst vel í heildina en það hefði verið gaman að fá Krít frá Miðhjáleigu líka en hún heltist í rekstri á þriðjudaginn. Hægt er að sjá sýninguna á hestafréttum í 1 kafla. Það Lombert og Hríma eru mjög lítið tamin og var ég ánægður með hvað þau stóðu sig vel við þessar aðstæður.

mikið búið að gerast upp á síðkastið

Mikið er búið að breytast hjá okkur hér á bæ síðustu viku en Þórhallur Dagur Pétursson tamningamaður og vinur er farinn suður yfir heiðar að temja hjá Didda Bárðar og Diddi er heppinn að fá hann í vinnu til sín og óskum við Tóta alls hins bezta. Þorbjörn Hreinn Matthíasson hefur leigt af okkur aðstöðu og temur í staðinn fyrir okkur og Hulda Lilý er að sjálfsögðu líka. Þá er gaman að sjá Matta Eiðsson vera farinn að ríða út aftur af miklum krafti hér með Lúlla. Við erum að bæta við 3 stóðhestastíum inni í gamla reykhúsinu hér en alls eru 8 stóðhestar á húsi. Lúlli fór með Jarp á Stjörnutöltið s.l laugardag og tókst það bara vel en þetta er í annað skiptið sem Jarpur keppir á ís og fékk 6,27 í einkunn. Hans aðall er samt B flokkur og verður honum telft fram þar í sumar. Lúlli spáir vel fyrir honum en Jarpur er svakalega rúmur bæði á tölti og brokki og mikið viljugur, fetið og stökkið einnig mjög gott.