Haukur frá Hrafnagili
Haukur er fæddur árið 1981 Hjalta Jósepssyni á Hrafnagili og er undan Gáska frá Hofsstöðum í Hálsasveit og Mósu frá Hrafnagili. Haukur var fæddur gráhöttóttur en varð síðar grár. Móðir hans var sýnd fyrr um sumarið en fékk ekki góðan dóm og var allt fundið að henni, eins og Hjalti orðaði það en hann bjóst allt eins við að hún færi í 1.verðlaun, mikil fótaburðameri.og viljug. Gáski var um sumarið í hólfi á Hrafnagil og mósu því haldið. Haukur þótti strax efnilegt hestefni og sveif um á vígalegu brokki en var mjög styggur við manninn og var því miður geltur 2 vetra eftir þónokkra fyrirhöfn. Gísli á Hofsstöðum hafði heyrt af honum og keypti hann dýru verði 5 vetra gamlan enda átti ekki að selja hann. Að sögn Gísla var Haukur viðkvæmur í tamningu og fór hann því ekki geyst í hann en Haukur tamdist hægt og rólega. Haukur er síðan sýndur í kynbótadómi árið 1990 og fékk 1.verðlaun, þar bar hæst 9,5 fyrir tölt og 9,0 fyrir háls og herðar. Samkvæmt Worldfeng en hann einn af þremur hestum sem fengu 9,5 fyrir tölt það árið. Gísli fór síðan með Hauk í Töltkeppni á fjórðungsmóti á Kaldármelum 1992 og unnu þeir það með yfirburðum Hauki hefur ekki verið telft fram í keppni oftar en hefur oft komið fram í reiðhallarsýningum og fylgdi föður sýnum til 1.verðlauna fyrir afkvæmi á LM 1992 og hefur þótt í gegnum tíðina eitt af þekktustu afkvæmum Gáska frá Hofsstöðum. Gaman er að segja frá því að Haukur og Hrímnir eru frændur því Mósi faðir Hrímnis er einnig faðir Mósu; móður Hauks.
Haukur er enn í fullu fjöri á Hofsstöðum og aldrei að vita hvort hann eigi eftir að koma fram á næstu misserum