Hrímnir frá Hrafnagili
Hrímnir frá Hrafnagili þekkja allir sem eitthvað vita um hesta. Hrímnir er fæddur Hjalta Jósepssyni árið 1975 á Hrafnagili í Eyjafirði og er kominn út af heimahrossum þar. Saga þessa stórbrotna gæðings er alveg einstök og verður seint eða aldrei leikin eftir. Hrímnir komst í eigu Björns á Varmalæk í Skagafirði vorið 1980 eins og mörgum er kunnugt og hefur verið þar síðan og er enn við bestu heilsu. Keppnisferill hans var ekki langur en að sama skapi eftirminnilegur Hrímnir kom aðeins 3 sinnum fram í keppni. Fyrst í gæðingakeppni klárhesta á hestamóti Skagfirðinga árið 1980 og vann þá keppni. Næst ári seinna, og varð hann Íslandsmeistari í tölti á Melgerðismelum með yfirburðum og loks vann hann B-flokk gæðinga á LM hestamanna á Vindheimamelum 1982 aðeins 7 vetra gamall eins og frægt er orðið. Hrímnir er tímamótahestur og einn mesti og fegursti gæðingur Íslandssögunnar. Sköpulag hans ,fasið, fótaburðurinn og þessi hringaði makki gerir hann að lifandi goðsögn og er draumahesturinn í hugum margra. Það hefur oft sannast í gegnum tíðina í allskyns kosningum, t.d. var hann kosinn klárhestur tuttugustu aldarinnar af lesendum Eiðfaxa árið 2001, þá fékk hann sérstaka heiðursviðurkenningu hestamanna á LM 2002 í Skagafirði, 20 árum eftir sinn frækna sigur í B-flokki gæðinga, þá 26 vetra gamall og bar ennþá af. Þá hefur hann oft verið fenginn til að fara fyrir allskyns uppákomum hestamanna og gjarnan stolið senunni. Ekki má gleyma kvikmynd Þráins Bertelssonar Magnús þar sem hann fór á kostum, Svona mætti lengi telja.
Það er því ekkert skrýtið að okkur langi til að rækta áfram hross út af Hrafnagilsmerum tengdum Hrímni því hann hefur gert Hrafnagil að nafni sem allir þekkja .
F: IS1972165053 Mósi frá Hrafnagili
Ff: IS1969165054 Hvíti-Hrafn frá Hrafnagili
Fm: IS1956265600 Freyja frá Hrafnagili
Fff: IS1963165055 Félagsgráni frá Hrafnagili
Ffm: IS1965265601 Hrefna frá Hrafnagili
Ffmf: IS1960165111 Skjóni frá Kristnesi
Ffmff: IS1957165630Glæsir frá Grund 2
Ffmm: IS1960265600 Steinka frá Hrafnagili Ættb.nr. 3848
M: IS1960265600 Steinka frá Hrafnagili 3848
Mf: IS1957165049 Jarpur frá Hrafnagili
Mm: IS1951265096 Grána frá Vallanesi
Mff: IS1954165026 Stígandi frá Kristnesi
Mfm:IS1948265083 Mósa frá Hrafnagili
Mfff: IS1947165480 Svipur frá Akureyri
Mffm: IS19AB265081 Glóa frá Stokkahlöðum
Mffmf: IS1927156520 Þokki frá Brún
Mffmm: IS19AB265082 Glóa eldri frá Stokkahlöðum
Anybody who knows anything about horses is familiar with Hrímnir from Hrafnagil. Hrímnir was born on the Hrafnagil farm in 1975. The story of this spectacular stallion is truly remarkable. As many people know, Hrímnir came into the possession of Björn from Varmilækur (Skagafjörður) in the spring of 1980 and has been there ever since. Today he is still in good health and spirits. His track record is not long or the list of tournaments he participated in but nevertheless memorable for many reasons. On only three occasions did Hrímnir participate in tournaments. His first public appearance was in a local tournament in Skagafjörður in 1980 and he of course won his group. Next year he came first by far and received first prize in tolt in the National Championship in Melgerðismelar. Last but not least, in 1982 he won the B-group of stallions in the Icelandic Horse Festival (Landsmót) in Vindheimamelar, then only 7 years old.
Hrímnir marked a turningpoint in the breeding of Icelandic horses as one of the greatest and most beautiful stallion ever born. His conformation, temperament, foot work (leg structure and correctness) and the exceptional structure of his neck / withers / shoulders make him a living legend and to many people the ultimate dream horse. This has been confirmed in many polls over the years. In 2001 he was named the greatest stallion of the 20th century by the readers of Eiðfaxi magazine. Also, he was the recipient of Honor stallion status at the Icelandic Horse Festival 2002 (Landsmót) in Skagafjörður 20 years after his memorable achievement. That day, at the age of 26, he was still outstanding in comparison to the horses competing that day.
On numerous occasions he has participated in all sorts of horse and riders-related events and usually taken people by storm. Finally, we must mention Hrímnir’s debut in the film industry when he took on the leading role in the Icelandic motion picture Magnús. As you see, we could go on and on!
Therefore, no one should be surprised when we explain our intentions to continue the breeding of mares related to Hrímnir since he laid the very foundations of Hrafnagil as an excellent breeding farm.