Hrossaræktarfélagið Hrímnir
Við höfum síðustu ár verið með ýmsa stóðhesta á okkar vegum og ákváðum að stofna félag utan um starfsemina. Okkur þótti vel við hæfi að það yrði nefnt eftir gæðingnum fagra Hrímni frá Hrafnagili því hann er okkar ræktunarmarkmið, bæði hvað varðar sköpulag og hæfileika. Enn sem komið er erum bara við félagsmenn ásamt Rósberg Óttarssyni á Akureyri.