Sarpur

Um okkur

Ég (Jón Elvar Hjörleifsson), Grettir bróðir og Þóra systir, ásamt mökum,keyptum jörðina Hrafnagil í Eyjafirði vorið 2000 og bjuggum saman hér fyrstu árin. Þóra og Ívar hættu 2004 og Grettir og Kristín 2007 og erum ég og Berglind Kristinsdóttir ábúendur á Hrafnagili frá nóvember 2007. Grettir er samt mikið að vinna fyrir okkur og er alveg ómissandi í allri vélavinnu o.fl. áður en við keyptum Hrafnagil bjuggum við gengt árinnar á Ytra-Laugalandi með um 50 kýr þar sem ég fæddur og uppalinn. Í dag erum við Berglind með um 170 kýr ásamt geldneytum og erum með 900.000 lítra rétt til mjólkurframleiðslu. Þá eigum við einnig Ytra-Laugaland að hálfu og eigum ræktunina á jörðinni Brúnum frá árinu 2001 en Prestsetrasjóður á sjálfa jörðina. Á Ytra-Laugalandi og Reykhúsum alast geldneytin upp en Reykhús tókum við á leigu 2008 og er rétt norðan við Kristnesþorpið.
12 janúar 2006 tókum við í gagnið svokallaða mjaltahringekju sem gerir okkur kleyft að mjólka 30 kýr í einu og taka mjaltir nú aðeins 2 klst í hvert mál, ekki 4-5 eins og áður var. Einnig starfrækjum við túnþökusölu á sumrin og byrjuðum á því sumarið 2006. Við erum einnig með um 20 fjár og 20 hænur. Hrossaræktin fer vaxandi hjá okkur ár frá ári en fyrst og fremst er þetta út af ánægjunni og höfum við gaman af allri ræktun og okkur fannst skylda að halda áfram að framrækta þau hross sem Hjalti Jósepsson gerði um 50 ára skeið, og oft með frábærum árangri. Við höfum keypt hryssur síðustu ár frá Hrafnagili eða ættaðar héðan, Perla frá Hrafnagili og Blanda eru að skila okkur góðu og árið okkar verður 2011

Leave a Reply

You must be logged in to post a comment.